Kynfræðsla verði skyldufag

Fréttir|2. september 2021

Starfshópur á vegum menntamálaráðherra hefur skrifað tillögur um úrbætur í kennslu um kynheilbrigði í grunn- og framhaldsskólum. Endurskoðun aðalnámskrár, breytt inntak kennaranáms, stöðumat og aukin starfsþróun er meðal þess sem lagt er til.

„Menntun í kennslu kynheilbrigðis þarf að vera í boði í grunnnámi kennara og mikilvægt er að mennta- og menningarmálaráðherra beiti sér fyrir því að tryggja úrbætur á náminu, þvert á skólastig.“

Svo hljóðar ein af tillögum starfshóps sem sem ætlað var að gera tillögur um með hvaða hætti væri unnt að koma á markvissri kennslu um kynheilbrigði og ofbeldisforvarnir í grunn- og framhaldsskólum.

Menntamálaráðherra setti starfshópinn á fót í lok árs 2020 í kjölfar umræðu á samfélagsmiðlum og sagði af því tilefni að skilmerkileg og öflug kynfræðsla, kennsla í samskiptum og lífsleikni hefði ekki í annan tíma verið mikilvægari.

Starfshópnum var meðal annars falið að gera tillögur að framkvæmd kennslu í kynfræðslu, taka afstöðu til hvort og þá hvaða breytingar þurfi að gera á aðalnámskrám grunnskóla og framhaldsskóla. Þá var hópnum falið að kanna viðhorf skólastjórnenda, kennara og nemenda til málaflokksins.

Hvað leggur starfhópurinn til?

Inntak kennaramenntunar þarf að skoða og mennta þarf kennaranema í kennslu kynheilbrigðis. „Kennarar þurfa að hafa þekkingu og færni til að treysta sér til að framkvæma kennslu af þessu tagi. Mikilvægt er að starfsfólk viti til hvers sé ætlað af þeim í kynfræðslu og að það fái stuðning skólasamfélagsins til að geta sinnt kynfræðslunni sem best,“ segir í skýrslu starfshópsins. Lagt er til að einingabær námskeið verði í boði í grunnnámi kennara, helst skyldunámskeið og að þeim verði komið á laggirnar næsta haust.

Þá leggur hópurinn til að framboð á starfsþróun fyrir kennara og fagfólk, sem sinnir kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum, verði tryggð. Lagt er til að Menntafléttan bjóði upp á starfsþróunarnámskeið í málaflokknum. Núverandi ástand er óboðlegt þar sem ekkert formlegt námskeið um kennslufræði alhliða kynfræðslu er í boði hvorki í kennaranámi né sem hluti starfsþróunar þeirra fagstétta sem að kynfræðslu koma.

„Kynfræðsla verði gerð að skyldufagi fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum og hefjist við upphaf skólagöngu,“ segir í skýrslunni. Fram kemur að taka skuli mið af mikilvægum áhersluþáttum alhliða kynfræðslu, svo sem aldri og þroska nemenda. Enn fremur er lagt til að útbúið verði heildstætt námsefni fyrir alla aldurhópa sem byggir ofan á fyrri þekkingu og færni nemenda með þroska þeirra í huga. Í skýrslunni kemur einnig fram að svo virðist sem alla yfirsýn yfir kennsluhætti málaflokksins og námsefni hans skorti hér á landi og leggur starfshópurinn til að kortlagning þeirra og samantekt alls þess námsefnis sem í boði er fari fram sem fyrst og að framboð gagnvirks námsefnis á íslensku á fjölbreyttu formi sem hentar öllum aldurshópum verði stóraukið.

 

Viðbragðsáætlun og stöðukönnun

Margt fleira er lagt til í skýrslunni; svo sem að aðalnámskrár verði endurskoðaðar með tilliti til þess að festa megi kynfræðslu betur í almennum hluta námskránna. Fjallað er um hlutverk skólahjúkrunarfræðinga og segir meðal annars að bæta þurfi úr stöðunni í framhaldsskólum þannig að framhaldsskólanemendur hafi greiðan aðgang að hjúkrunarfræðingi á skólatíma.

„Mikilvægt er að innan hvers skóla sé til viðbragðsáætlun til að taka á því þegar upp kemur kynferðislegt eða kynbundið ofbeldi innan skólanna, sbr. viðbragðsáætlun gegn einelti, andlegu eða líkamlegu ofbeldi.“ Hópurinn leggur til að ráðuneytið geri miðlæga viðbragðsáætlun sem skólar geta tekið beint eða lagað að sínum starfsháttum.

Síðast en ekki síst leggur starfshópurinn til að gerð verði stöðukönnun  á framkvæmd kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. „Afar mikilvægt er að fá upplýsingar um það hversu vel kynfræðsla komi til móts við þarfir allra nemenda miðað við núverandi stöðu,“ segir í skýrslunni. Hópurinn leggur til að könnun af þessu tagi verði gerð í vetur og síðan endurtekin á fimm ára fresti.

Lesa skýrslu starfshópsins