Kynbundið ofbeldi og ábyrgð skólans

Stígamót efna til ráðstefnu 10. mars næstkomandi þar sem fjallað verður um forvarnir og aðgerðir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi ungmenna í grunnskólum og framhaldsskólum.
Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina Kynbundið ofbeldi og ábyrgð skólans, er haldin í tengslum við átakið Sjúkást og er sérstaklega sniðin að skólafólki.
„Samkvæmt þingsályktunartillögu um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, bjóðum við sérstaklega velkomna fulltrúa grunnskólanna sem sitja í nýstofnuðum forvarnarteymum, og þá námsráðgjafa og aðra starfsmenn framhaldsskóla sem sitja í teymi verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli," segir á vef Stígamóta.
Kennarasamband Íslands, ásamt forsætisráðuneytinu, mennta- og barnamálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, er bakhjarl ráðstefnunnar.
Allir sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína og taka þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi eru velkomnir.
Ráðstefnan fer fram á Berjaya Reykjavik Natura Hótel í Reykjavík 10. mars næstkomandi, klukkan 10-15. Við mælum eindregið með því að fólk mæti á staðinn en þó verður einnig boðið upp á þátttöku í gegnum streymi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
