Kyn, starfsframi og laun
Kennarasambandið vekur athygli á morgunverðarfundi Aðgerðahóps um launajafnrétti miðvikudaginn 20. maí næstkomandi. Yfirskrift fundarins er "Kyn, starfsframi og laun. Staða karla og kvenna á íslenskum vinnumarkaði". Fundurinn hefst klukkan 08.00 á Grand Hótel Reykjavík en áætluð fundarlok eru klukann 10.00.
Dagskrá
{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_RRmxl8dUxa]}
8:00-8:30
Skráning og morgunverður
8:30-8:40
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra
Ávarp
8:40-8:55
Sigurður Snævarr, hagfræðingur.
Niðurstöður rannsóknar um kynbundinn launamun
8:55-9:10
Dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík.
Er jafnrétti í augsýn? Staða kvenna og karla á íslenskum vinnumarkaði
9:10-9:25
Dr. Kolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur.
Skipting heimilisstarfa og ráðstöfun heimilistekna
9:25-09:40
Guðný Einarsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Aðgerðir aðgerðahóps um launajafnrétti — framtíðaráskoranir í launajafnréttismálum
09:40-10:00
Fyrirspurnir og umræður
Fundarstjóri: Siv Friðleifsdóttir
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig hér.
Morgunverður er framreiddur frá kl. 8:00. Morgunverðarhlaðborð er innifalið í þátttökugjaldi, kr. 5.000.
Nánari upplýsingar má sjá á Facebook síðu fundarins.
Aðgerðahópur stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins var skipaður þann 20. desember 2012 í tilraunaskyni til tveggja ára. Í október 2014 var skipunartími hans framlengdur um tvö ár. Verkefni aðgerðahópsins eru meðal annars að vinna að samræmingu rannsókna á kynbundnum launamun, annast kynningu og fræðslu vegna innleiðingar jafnlaunastaðals, upplýsingamiðlun og ráðgjöf um launajafnrétti og gerð áætlunar um uppbrot hins kynskipta vinnumarkaðar. Á morgunverðarfundinum verða kynntar niðurstöður rannsóknaverkefna aðerðahópsins og rætt um framtíðaráskoranir í launajafnréttismálum á íslenskum vinnumarkaði.