Kvikindahátíð fyrir efstu bekki grunnskólans

Nú gefst nemendum í 8. til 10. bekk grunnskólans tækifæri til að taka þátt í spennandi stuttmyndahátíð á vegum barnamenningarverkefnisins List fyrir alla.
Nemendur í áttunda til tíunda bekk grunnskólans eru hvattir til að taka þátt í stuttmyndakeppni Kvikindahátíðar.
„Þema keppninnar í ár er kvikindi. Fólk á Íslandi hefur frá upphafi byggðar sagt sögur af skrímslum og óvættum sem hafa brugðið sér í margra kvikinda líki, frá mannfólki og dýrum yfir í óhugnaleg skrímsli. Þessi kvikindi hafa svo öðru hvoru villst inn í mannheima þar sem þau hafa valdi usla. Hvað ef ógurlegt kvikindi myndi villast inn í þitt líf, fjölskyldu og vina?“ segir á vefnum List fyrir alla. Horfa á kynningu.
Leikreglurnar eru einfaldar; gott þykir að miða við að stuttmynd sé ekki lengri en sjö mínútur. Skiladagur er 23. nóvember og sjálf Kvikindahátiðin fer fram í Bíó Paradís 6. desember. Dómnefnd mun fara yfir alla stuttmyndir sem berast, veittar verða viðurkenningar í nokkrum flokkum og síðan valdar myndir sem sýndar verða á hátíðinni.
Útbúið hefur verið vandað námsefni sem hægt er að styðjast við í stuttmyndagerðinni; fjallað er um undirbúning og handrit, upptökur og eftirvinnsluna. Þá segja ýmsir listamenn kvikmyndanna frá starfi sínu; Baldvin Z leikstjóri, Bergsteinn Björgúlfsson kvikmyndastjóri og Elísabet Rónaldsdóttir klippari eru þar á meðal.
Kvikindahátíðin er eitt af mörgum verkefnum barnamenningarverkefnisins List fyrir alla – sem er á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að velja og miðla listviðburðum um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Önnur menningarverkefni
Á Listveitunni, sem er nýr vefur, er að finna upplýsingar um hinar ýmsu listgreinar; auk kvikmyndagerðar má lesa þar um sviðslistir, bókmenntir, hönnun og byggingarlist, tónlist og myndlist. Efnið er afar aðgengilegt og vel fram sett; fjöldi myndbanda þar sem besta listafólk landsins leggur málefninu lið.
Meðal annarra verkefna má nefna Handritin til barnanna sem stendur yfir í allan vetur. Tilefnið er að í apríl á næsta verður liðin hálf öld síðan síðan fyrstu handritin komu heim frá Danmörku. Um fimmtíu grunnskólar víðs vegar um land fá heimsókn frá ungum fræðurum á veg Árnastofunar, þeim Snorra Mássyni og Jakobi Birgissyni. Hægt er að kynna sér þetta áhugaverða verkefni hér.
Á vefnum List fyrir alla og Listveitunni er að finna svo ótal margt fleira sem getur glatt og glætt áhuga grunnskólakrakka.
Kvikindahátíðin – mikilvæg atriði
- Stuttmynd á helst ekki að vera lengri en sjö mínútur
- Skiladagur er 23 nóvember
- Kvikindahátíðin fer fram 6. desember
- Skrá sig til leiks
Tenglar