Kvennaverkfall 2025 – tími til aðgerða

Kennarasamband Íslands stendur með öðrum samtökum að Kvennaverkfallinu. Málstaðurinn er brýnn: að laun kvennastétta verði metin að verðleikum, að kynbundnum launamun verði eytt og að kynbundnu ofbeldi verði útrýmt. Konur og kvár ætla ekki að bíða lengur eftir aðgerðum – nú er kominn tími til að láta verkin tala.
Kæra félagsfólk Kennarasambands Íslands!
Föstudaginn 24. október verður Kvennaverkfall, þar sem konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf. Að undanförnu hafa margir félagsmenn leitað til KÍ og aðildarfélaga þess til að spyrja hvernig dagurinn verði framkvæmdur, og sérstaklega hvort laun verði skert.
Kennarasamband Íslands stendur með öðrum samtökum að Kvennaverkfallinu. Málstaðurinn er brýnn: að laun kvennastétta verði metin að verðleikum, að kynbundnum launamun verði eytt og að kynbundnu ofbeldi verði útrýmt. Konur og kvár ætla ekki að bíða lengur eftir aðgerðum – nú er kominn tími til að láta verkin tala.
Þó að um borgaralega óhlýðni sé að ræða, ekki verkfall í hefðbundnum skilningi, er dagurinn mikilvæg aðgerð sem byggir á sterkum sögulegum grunni. Það er á ábyrgð hvers og eins félagsmanns að ákveða þátttöku, en krafturinn verður til í samstöðunni.
Árið 1975 lögðu um 90% kvenna niður störf og landið stóð kyrrt. Skólar lokuðu, feður sinntu börnunum og áhrifin voru skýr. Nú, 50 árum síðar, er enn ástæða til að minna á að jafnrétti hefur hvorki náðst né fest rætur til fulls. Verkefnið er aðkallandi og við verðum að halda áfram að hrista upp í kerfinu.
Í Kennarasambandi Íslands er mikill mannauður kvenna og kvára sem hafa lengi verið leiðtogar í jafnréttisbaráttu. Það er því eðlilegt og nauðsynlegt að félagsmenn KÍ verði í fararbroddi 24. október – bæði í borg og byggð.
Látum þann dag sýna að við ætlum okkur meira en orðin tóm. Með samstöðu, kjarki og trú á réttlæti getum við fært jafnréttið nær raunveruleikanum. Baráttan er lifandi – og tíminn til að bregðast við er núna.
Fyrir hönd stjórnar KÍ,
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
