Kveðja til starfsliðs í skólum landsins
Fréttir|26. mars 2020

Forseti Íslands flytur kennurum, leiðbeinendum, skólaliðum og öðru starfsfólki á öllum skólastigum kveðju og þakkir fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæður.
„Við glímum við skæðan vágest. Hér á landi hefur verið gripið til ýmissa aðgerða vegna farsóttarinnar sem nú herjar um víða veröld. Öll iðja í skólum landsins hefur borið þess merki. Aðdáunarvert hefur verið að sjá hvernig starfslið hefur brugðist við, með fjarkennslu, með því að skipa í deildir og bekki á nýja vegu og með því að finna fjölmargar aðrar leiðir til að gæta, sinna og mennta við óvenjulegar aðstæður,“ segir í kveðju forseta Íslands til alls starfsliðs í skólum landsins.