Kveðja frá samninganefnd FT

Fréttir|12. júlí 2020

Markmiðið er að ljúka gerð nýs kjarasamnings fyrir 1. október nk. með gildistíma frá 1. sept. 2020 til 31. mars 2023.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Félag grunnskólakennara (FG) undirrituðu samkomulag um endurskoðaða viðræðuáætlun við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) föstudaginn 10. júlí.
Samhliða var áréttað á fundi samstarfsnefndar FT og SNS að ekki skal gerður greinarmunur á skólahljómsveitum og öðrum tónlistarskólum hvað varðar kjarasamning samningsaðila í heild sinni og/eða einstakar greinar hans. Bókun þessa efnis hefur verið í kjarasamningi tónlistarskólakennara allt frá árinu 2001. Áréttingin er gerð með skírskotun til þess stjórnunarkvóta sem tónlistarskólar hafa úr að moða skv. kjarasamningnum.

Eingreiðsla 1. sept. 2020
Samkomulagi samningsaðila um endurskoðaða viðræðuáætlun fylgir eingreiðsla fyrir tímabilið 1. des. 2019 til og með 31. ágúst 2020 að upphæð 303.400 kr. miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hverjum félagsmanni hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall og skal greiðast 1. september nk. Félagsmenn í fæðingarorlofi fá einnig eingreiðsluna.

Markmiðið nýr kjarasamningur með gildistímann 1. sept. 2020 til 31. mars 2023
Umfangsmiklum kerfisbreytingum fylgir oft að tjalda þarf lengur en til einnar nætur
Í endurnýjaðri viðræðuáætlun er sérstaklega dregið fram það stóra viðfangsefni sem samningsaðilar hafa sameinast um í þessari samningalotu, þ.e. að ljúka gerð sameiginlegrar launatöflu KÍ félaga en samhliða upptöku nýrrar launatöflu er unnið að samræmingu launamyndunarþátta vegna viðbótarmenntunar og starfsreynslu.

Samningsaðilar eru sammála um að vanda þurfi vel til verka við svo umfangsmiklar breytingar og byggir samkomulagið á þeim grunni. Þannig er frekari gagnaöflun, úrvinnslu og greiningu launagagna gefið aukið andrými og verður hafist handa við þá vinnu í ágúst en ljóst þykir að gagnasöfnun muni ganga treglega yfir hábjargræðistímann.

Markmiðið er að ljúka gerð nýs kjarasamnings fyrir 1. október nk. með gildistíma frá 1. sept. 2020 til 31. mars 2023.

Sú undirbúningsvinna sem samninganefnd félagsins hefur m.a. unnið í tengslum við gerð sameiginlegrar launatöflu hefur ákveðna skírskotun í fagleg áherslumál félagsins, sbr. eftirfarandi búta úr endurnýjaðri viðræðuáætlun:

„Sameiginleg launatafla KÍ félaga
Með breytingum á lögum nr. 95/2020 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er kennurum með tiltekna sérhæfingu og hæfni tryggður réttur til kennslu í leik- grunn- og framhaldsskólum. Þannig fela lögin í sér að þeir sem sinna uppeldis-, kennslu- og stjórnunarstörfum í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafi tiltekna grunnmenntun og hæfni í samræmi við störf þeirra og ábyrgð. Í lögunum er nýmæli að vísað er í aðalnámskrá tónlistarskóla en þannig falla tónlistarskólakennarar undir gildissvið laganna. Þá gera lögin ráð fyrir því að tónlistarskólakennarar öðlist rétt til að sækja um leyfisbréf vegna kennslu í öðrum skólagerðum.“

„Kennarasamband Íslands leggur áherslu á að tryggt verði að kennarapróf, sem lögum samkvæmt veita kennurum sömu starfsréttindi, séu jafngild til launa án tillits til þess, á hvaða tíma þau hafa verið tekin.
Lögð er áhersla á að menntun kennara og stjórnenda í tónlistarskólum verði sköpuð samræmd umgjörð með vísan til framangreinds.“

Allt er þegar þrennt er!
Talan þrír hefur frá örófi alda verið talin afar máttug og eru samninganefndir félaganna þess fullvissar að undirritun þessarar þriðju viðræðuáætlunar í einni og sömu samningalotunni sé rökrétt skref í trausti þess að félagsmenn sýni okkur biðlund meðan við fylgjum til enda þeim mikilvægu verkefnum sem meginþungi samningavinnunnar hefur nú beinst að, - en að sjálfsögðu er einnig unnið að öðrum áhersluatriðum félagsins.

Hér má finna samkomulag FT, FG og SNS um endurnýjaða viðræðuáætlun í heild sinni og fundargerð frá samstarfsnefndarfundi FT og SNS.

 

Samninganefnd FT sendir félagsmönnum sólarkveðjur,

Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, formaður FT
Aron Örn Óskarsson - Tónlistarskóli Reykjanesbæjar / Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Ingunn Ósk Sturludóttir - Tónlistarskóli Ísafjarðar
Vilberg Viggósson - Tónskólinn Do Re Mí
Örlygur Benediktsson - Tónlistarskóli Árnesinga / Rangæinga
Guðbjörg Sigurjónsdóttir - Söngskóli Sigurðar Demetz
Guðlaugur Viktorsson - Tónlistarskóli Eyjafjarðar
Kristín Kristjánsdóttir - Tónlistarskóli V-Húnavatnssýslu