Kvár, kynlíf og kventónskáld

Afþreying og stundargaman er mikilvægt að loknum löngum vinnudegi. Hér eru fáeinar hugmyndir um dund og almenna dægrastyttingu.
Ritstjórn Skólavörðunnar mælti með þessu í öðru tölublaði síðasta árs
Delluferðin
Sigrún Pálsdóttir – Forlagið
Delluferðin er fjórða bók höfundar og fjallar um unga konu í kringum aldamótin 1900. Æðsti embættismaður konungs á Íslandi boðaði til samdrykkju með nokkrum félögum sínum seint um vetur árið 1897. Efni fundarins var landflótta stúlka, Sigurlína Brandsdóttir, og íslenskur forngripur sem þá hafði nýlega komist í eigu Metropolitan-safnsins í New York. Það tekur við spennandi atburðarás og ekki skemmir fyrir fallegur stíll og texti höfundar.
Þess má geta að höfundur hlaut Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins 2021 fyrir Delluferðina.
Sex Education
Gamandrama á Netflix
Bresk þáttaröð sem hefur slegið í gegn um víða veröld - og ekkert rangt við það því Sex Education eru afar vel skrifaðir og vel leiknir þættir. Í þáttunum er tekist á við viðkvæm umræðuefni, svo sem fóstureyðingar, kynvitund og drusluskömm. Framsetningin er skemmtileg, áhugaverð og fræðandi. Þá spillir stórleikur Gillian Anderson ekki fyrir – hún hefur sjaldan eða aldrei verið betri.
Malid.is
Verkfæri fyrir alla sem nota íslenskt mál
Á málið.is er ókeypis og auðveldur aðgangur að ýmsum þeim gagnasöfnum um íslenskt mál sem Árnastofnun hefur yfir að ráða, um beygingar, stafsetningu, merkingu, notkun, orðasambönd og uppruna orða svo eitthvað sé nefnt. Vefgáttin hefur notið gríðarlegra vinsælda og notkun hennar fer enn hratt vaxandi. Í tilefni fimm ára afmælis Málsins verður vefgáttin uppfærð og gerð enn aðgengilegri, auk þess sem nýtt efni bætist við, m.a. Blöndalsorðabók, Nýyrðavefurinn og nokkrar íslensk-norrænar orðabækur.
Einnig verður hægt að nálgast hugmyndir að nýtingu vefgáttarinnar í verkefnum í íslenskukennslu. Algjörlega ómissandi vefur fyrir alla kennara landsins!
Kvár
Heimildamyndasaga eftir Elísabetu Rún
Afar áhugaverð myndasaga eftir teiknarann og myndasöguhöfundinn Elísabetu Rún. Kvár fjallar um kynseginleika og byggir á viðtölum við sex kvár sem segja frá reynslu sinni; það eru Regn Sólmundur, Embla, Alda Villiljós, Viima, Hrafnsunna og Mars. Kvár er nýyrði sem táknar manneskju án tillits til kyns. Bókin er merkileg fyrir þær sakir að hún er fyrsta íslenska bókin sem fjallar um þetta efni og auk þess fyrsta íslenska heimildamyndasagan.
Seinfeld
Gamanþættir á Netflix
Seinfeld er nú aðgengilegur á Netflix og verður ekki annað sagt en þáttaröðin, sem var fyrst í loftinu 1989-1998, eldist með eindæmum vel. Það er auðvelt að detta hvar sem er inn í þáttaröðina enda Seinfeld einstakur fyrir þær sakir að persónurnar, Jerry, Elaine, George og Kramer, þroskast ekkert, læra ekki af mistökum sínum og verða ekki betri manneskjur. „No hugging, no learning,“ er enda viðkvæðið í Seinfeld.
Kventónskáld í karlaveldi
Útvarpsþáttaröð á RÚV
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur hefur gert tíu afar áhugaverða þætti um kventónskáld sem fæddar voru á 19. öld. Þessar konur nutu ekki sömu tækifæra og karlar til að mennta sig í tónsmíðum. Meðal tónskálda sem fjallað er um eru Clara Schumann, Fanny Mendelssohn og Emilie Mayer. Þá er vert að benda á systurþættina Þögnin rofin þar sem leikin er tónlist tónskáldanna. Þetta er gott útvarp!