Kröfuskrúðganga í dag
Tónlistarskólakennarar ætla að fjölmenna í kröfuskrúðgöngu í dag. Safnast verður saman við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti klukkan 14.30 og síðan gengið fylktu liði niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Austurstræti og endað á Austurvelli. Fólk er hvatt til að fjölmenna í gönguna, blása, berja bumbur og veifa kröfuspjöldum. Við upphaf göngunnar verður framinn gjörningur á Skólavörðuholtinu. Hægt er að kynna sér kröfuskrúðgönguna betur á viðburðasíðu á Facebook.
Verkfallsmiðstöðin að Hlíðarenda verður opin í dag frá 11 til 14. Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur kemur klukkan 11.30 og les úr nýútkominni bók sinni, Englaryki. Félagar eru hvattir til að koma í verkfallsmiðstöðina og aðstoða við undirbúning göngunnar.
Í dag er vika liðin síðan verkfall tónlistarskólakennara hófst en samningafundir hafa því miður ekki skilað árangri.