Kröfugöngur á baráttudegi verkalýðsins

Fréttir|24. apríl 2024

Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að taka þátt í hátíðarhöldum, kröfugöngum og útifundum 1. maí. Yfirskrift dagsins er að þessu sinni Sterk hreyfing – sterkt samfélag

Baráttudagur verkalýðsins er í næstu viku, miðvikudaginn 1. maí, og hvetur KÍ félagsfólk til að taka þátt í kröfugöngum og útifundum um allt land. 

Yfirskrift dagsins að þessu sinni er Sterk hreyfing – sterkt samfélag.

Styrkur verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi hefur í gegnum tíðina gert okkur kleift að byggja upp norrænt velferðarsamfélag og tryggt launafólki réttindi sem okkur þykir sjálfsögð í dag svo sem sumarorlof, greiðslur í fæðingarorlofi og veikindarétt. Þann 1. maí stöndum við vörð um og heiðrum framlag launafólks, fyrr og nú, í öllum geirum og lögum samfélagsins. Dagurinn er mikilvæg áminning um áframhaldandi þörf fyrir samstöðu og sameiginlegan slagkraft vinnandi fólks til að skapa réttlátari og sanngjarnari framtíð fyrir öll.

Í Reykjavík fer kröfugangan af stað frá Skólavörðuholti kl 13:30 og hefst útifundur á Ingólfstorgi kl 14:00. 

Dagskráin í Reykjavík hljóðar svo

  • 13:00  Safnast saman á Skólavörðuholti
  • 13:30  Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi
    Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
  • 14:00  Útifundur hefst
  • Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar.
  • Ræðu flytja Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.
  • Bríet og Úlfur Úlfur munu taka lagið og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk lnternationallin og Maístjörnuna.

Kennarasambandið býður félagsfólki að koma á skrifstofuna í Borgartúni 30 að lokinni kröfugöngu og þiggja vöfflur og kaffi.

Svipmyndir frá kröfugöngunni í fyrra