Kröfuganga fyrst og svo gleði á opnu húsi hjá KÍ

Félagsmenn KÍ gengu fylktu liði í kröfugöngu dagsins í Reykjavík. Sú nýbreytni KÍ að bjóða félagsfólki í kaffi á skrifstofunni mæltist vel fyrir.
Fjölmargir félagsmenn og fjölskyldur þeirra komu á opið hús hjá Kennarasambandinu í dag. Viðburðurinn tókst vel og starfsfólk KÍ tók á vel á móti gestum. Boðið var upp á kaffi, konfekt og vöfflur.
Þetta er í fyrsta sinn sem Kennarasambandið opnar dyrnar með þessum hætti fyrir félagsmönnum. Eins og flestir vita flutti Kennarasambandið úr gamla Kennarahúsinu í byrjun árs 2020 og í nútímalegt skrifstofuhúsnæði í Borgartúni 30. Svo kom COVID og þarf ekki að orðlengja það að dregist hefur að bjóða félagsmenn velkomna með formlegum hætti.
„Það er afskaplega gaman að geta loksins boðið kennurum í húsnæðið sitt og enn skemmtilegra að geta valið 1. maí sem þann fyrsta sem við opnum húsið á þennan hátt. Það var afskaplega góður andi og framúrskarandi veitingar gerðu sitt til að gleðja sinnið og minna okkur öll á mikilvægi samstöðunnar fyrir launafólk – það er ennþá lykilatriði okkur öllum til heilla. Þetta var flottur fyrsti viðburður og verður enn betri að ári!" segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.

Stormandi lukka var meðal viðstaddra hjá KÍ í dag. Frábær tónlist og ljómandi góðar veitingar.
Þá jók heimsókn Lúðrasveitar verkalýðsins enn á stemninguna en þau léku nokkur lög fyrir gesti KÍ.
Kröfugangan í Reykjavík var hefðbundin en um leið söguleg því 100 ár eru síðan fyrsta gangan var farin. Góður hópur gekk undir fána Kennarasambandsins í kröfugöngunni í Reykjavík. Veðrið lék við göngufólk og stemning í göngunni var eins og góð og hægt er að hugsa sér. Yfirskrift dagsins var Réttlæti, jöfnuður, velferð.