Kristín Björnsdóttir er nýr formaður KFR

Fréttir|29. apríl 2024

Aðalfundur Kennarafélags Reykjavíkur fór fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins, síðdegis í dag. Breytingar urðu á stjórn félagsins.

Kristín Björnsdóttir er nýr formaður Kennarafélags Reykjavíkur (KFR). Þrjú buðu sig fram til formanns og var kosið á milli þeirra á aðalfundi KFR í dag Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var þannig að Kristín hlaut 48 atkvæði, Eðvarð Hilmarsson hlaut 20 atkvæði og Þórunn Sif Böðvarsdóttir hlaut 13 atkvæði. 

Fráfarandi formaður, Jón Ingi Gíslason, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. 

Guðbjörg Íris Atladóttir, Lilja Margrét Möller og Rakel Linda Kristjánsdóttir voru kjörnar í stjórn KFR til tveggja ára. Þórey Björk Hjaltadóttir var kosin til eins árs. 

Lára Guðrún Agnarsdóttir, Ragnheiður Helen Eðvarðsdóttir náðu ekki kjöri. 

Sjálfkjörið var i kjörstjórn en þar sitja nú Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, Valgerður Sif Jónsdóttir og Þórey Björk Hjaltadóttir. 

Að sama skapi voru skoðunarmenn reikninga sjálfkjörnir en þar eiga sæti Elín Guðfinna Thorarensen, Þóra Kristinsdóttir og Bergsteinn Gunnarsson en sá síðastnefndi er varamaður.