Krefjast samninga við stjórnendur leikskóla
Fréttir|1. september 2014
Félagsmenn í Félagi stjórnenda leikskóla söfnuðust saman við húsnæði Ríkissáttasemjara í morgun til að sýna samninganefnd FSL stuðning í verki auk þess að krefjast að þegar verði samið við félagið. Áætlað er að á annað hundrað stjórnendur í leikskólum hafi tekið þátt í samstöðufundinum. Sjöundi fundur í kjaradeildu FSL og Sambands íslenskra sveitarfélaga undir stjórn ríkissáttasemjara hófst klukkan tíu í morgun. Samningar félagsins hafa nú verið lausir í sjö mánuði.