Krefjast samninga strax
Skólastjórnendur á Austurlandi og í Kópavogi lýsa í nýjum ályktunum yfir óánægju með þann drátt sem orðið hefur á að Samband íslenskra sveitarfélaga gangi frá kjarasamningi við Skólastjórafélag Íslands. Bent er á að þegar verði að hækka laun skólastjórnenda í samræmi við aukið álag sem meðal annars fylgi nýju vinnumati.
Álykun Skólastjórafélags Austurlands:
Skólastjórnendur hafa verið samningslausir síðan 1. júní 2015. Skólastjórnendur á Austurlandi eru mjög ósáttir við og lýsa óánægju sinni með hve samningar hafa dregist á langinn. Með nýju vinnumati hefur álag stjórnenda aukist töluvert og skólastjórnendur gera þá kröfu að hækkun launa verði í samræmi við ábyrgð, álag og umfang starfsins. Þær hækkanir geta ekki verið minni en þær prósentuhækkanir sem Samband íslenskra sveitarfélaga samdi um við Félag grunnskólakennara.
Skólastjórafélag Austurlands skorar á sveitastjórnir að bregðast við hið fyrsta.
Undir álykunina ritar Stefanía Malen Stefánsdóttir, formaður Skólastjórafélags Austurlands.
Ályktun skólastjórnenda í Kópavogi:
Nú standa yfir samningaviðræður Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga skólastjórnenda. Skólastjórnendur í Kópavogi eru ósáttir við hve langan tíma kjaraviðræður hafa tekið en þeir hafa verið samningslausir frá því 1. júní. Skólastjórnendur gera kröfur á að hækkun launa þeirra verði í samræmi við ábyrgð, umfang og álag starfsins og í engu tilfelli lægri en þær prósentuhækkanir sem Samband íslenskra sveitarfélaga samdi um við Félag grunnskólakennara. Með nýju vinnumati kennara hefur álag á stjórnendur stóraukist.
Stjórnendur í Kópavogi vonast til að sveitastjórnir komi til móts við kröfur stjórnenda hið fyrsta.
Undir ályktunina rita Guðrún G. Halldórsdóttir, formaður og Hilmar Björgvinsson, ritari.