Krefjast alvöru samráðs við skólasamfélagið

Fréttir|23. maí 2024

Fjölmenni kom til fundar með forystufólki Kennarasambandsins í Eskifjarðarskóla í gær. Markmið fundarins var að heyra í félagsfólki KÍ er varðar fyrirhugaðar breytingar á skólamálum í byggðarlaginu.

Forystufólk KÍ hefur undanfarna daga farið um Fjarðabyggð og hitt fulltrúa grunnskóla og tónlistarskóla á svæðinu. Föruneytið var skipað Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambandsins, Mjöll Matthíasdóttur, formanni Félags grunnskólakennara, Þorsteini Sæberg, formanni Skólastjórafélags Íslands, og Sigrúnu Grendal, formanni Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Fyrirhugaðar breytingar á skólamálum voru fyrst kynntar í lok febrúar og síðan þá hafa forsvarsmenn KÍ verið í sambandi við félagsfólk fyrir austan. Markmið heimsóknarinnar nú var að fá enn betri mynd af sýn kennara og skólastjórnenda á fyrirhugaðar breytingar. Um leið var ætlunin einnig að vera til aðstoðar og hvetja til samráðs við skólasamfélagið.

„Hljóðið í fólkinu er þungt því það telur að samráðið hafi ekki verið nægjanlegt til þessa,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í viðtali við Austurfrétt um stöðuna.

En hvaða breytingar eru boðaðar?

Starfshópur sveitarstjórnar hefur lagt til að grunnskólar í sex byggðakjörnum Fjarðabyggðar verði sameinaðir undir nafni Grunnskóla Fjarðabyggðar. Sama verði gert við leikskóla og tónlistarskóla í byggðarlaginu. „Í sameinuðum grunnskóla Fjarðabyggðar verður gert ráð fyrir að grunnskólastjóri stýri hverri starfsstöð en staðan verður án kennsluskyldu. Í grunnskólanum á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði verður deildarstjóri settur yfir grunnskólann og hann þar með tekinn út úr samrekstri leik- og grunnskóla. Ekki er gert ráð fyrir að hafa aðstoðarskólastjóra né deildarstjóra sérkennslu á starfsstöðvunum," segir á vef Fjarðabyggðar. 

Eftir athugasemdir við breytingarnar og fundi með skólastjórum samþykkti bæjarráð Fjarðabyggðar á þriðjudag nýtt upplegg að breytingunum. Áfram er gert ráð fyrir að tónlistarskólarnir verði sameinaðir í haust og breytingum á leikskólum er frestað til áramóta. Í grunnskólunum breytist ekkert fyrir næsta skólaár en myndaður verður rýnihópur sem á að skila af sér lokatillögum í febrúar á næsta ári, líkt og segir á vef Austurfréttar.

Skólarnir eigi að vera leiðandi

Þá funduðu einnig fulltrúar KÍ með bæjarstjóra í gær auk þess sem formaður sambandsins hitti fulltrúa úr bæjarráði í morgun. Í samtali við Austurfrétt segir Magnús Þór ætlun bæjaryfirvalda að standa við samráð en það þurfi að sýna það í verki. 

„Það er mikilvægt að þetta verði alvöru samráð þar sem skólarnir verði leiðandi í að rýna sín verkefni. Krafan er skýr um alvöru samráð í gegnum hvern skóla fyrir sig. Hér er mjög öflugt fólk með brennandi áhuga á starfi sínu.“

Þá munu formenn Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla ásamt formanni KÍ hitta félagsfólk dagana 10. og 11. júní næstkomandi. 

Lesa viðtal við Magnús Þór hjá Austurfrétt.