Krafan um jöfnun launa milli markaða leiðarstef

Fréttir|15. október 2024

Kennarafélög framhaldsskóla víða um land hvetja viðræðunefnd KÍ til dáða. Minnt er á samningsleysi félagsmanna í FF og FS. Kennarafélögin standa þétt að baki samninganefndum.

Kennarafélög framhaldsskóla hafa hvert af öðru sent frá sér ályktanir síðustu vikurnar þar sem vakin er athygli á mikilvægi þess að gengið verði frá kjarasamningum. Félagsfólk í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda framhaldsskóla (FS) hefur verið án kjarasamnings síðan 31. mars. Kennarafélögin lýsa fullum stuðningi við samningafólk FF og FS. 

Kennarafélögin eiga það sammerkt að krefjast þess að gengið verði til samninga og að launaþróun stéttarinnar verði tryggð til framtíðar. Krafan um jöfnun launa milli markaða er leiðarstef í ályktunum félaganna. Minnt er á að árið 2016 var gengið frá samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda á almenna og opinbera markaðnum. Samhliða jöfnun lífeyrisréttinda átti að jafna laun milli markaða. Nú, átta árum síðar, hefur slíkt samkomulag ekki náðst. 

Kennarasambandið gengur sameinað til samningagerðar fyrir öll aðildarfélög sambandsins. Viðræðunefnd KÍ er þannig skipuð formönnum FF, FS, FG, FL, FSL, FT og SÍ auk formanns KÍ. 

Hver eru skilaboð félaganna?

Félagsfólk FF eru nú þegar farið að sjá skerðingar á lífeyrisréttindum sínum en ekkert bólar á jöfnun launa milli markaða þrátt fyrir að átta ár séu liðin frá því að samkomulagið var undirritað. Þetta verður að vera algjört forgangsmál í þeim kjaraviðræðum sem fram undan eru.

Úr ályktun Kennarafélags VMA

Framhaldsskólakennarar vilja að menntun og ábyrgð sé metin til launa auk þess sem við krefjumst þess að fyrri kjarasamningar og aðrir samningar séu efndir. Fundurinn leggur til að ekki verði skrifað undir fleiri kjarasamninga nema þeir fyrri séu virtir.

Úr ályktun Kennarafélags FSu

Framhaldsskólakennarar vilja að menntun og ábyrgð séu metin til launa auk þess sem við krefjumst þess að fyrri kjarasamningar og aðrir samningar séu efndir. Fundurinn leggur til að ekki verði skrifað undir fleiri kjarasamninga nema þeir fyrri séu virtir. Fjárfestum í kennurum – menntun er lykillinn að framtíðinni.

Úr ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Svo virðist sem samninganefnd ríkisins ætli sér ekki með góðu að standa við undirritað samkomulag frá 2016, varðandi jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins. Þetta er stærsta málið okkar og alls ekki hægt að samþykkja kjarasamninga lengur, án þess að þetta mál sé leyst, sérstaklega í ljósi þess að kennarar eru tilfinnanlega farnir að sjá minnkun lífeyrisréttinda. Frekari seinkun er ekki liðin í þessari óásættanlegu stöðu og hvetur KFBHS, samninganefndir að setja þetta mál í forgang í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir.

Úr ályktun Kennarafélags Borgarholtsskóla

Framhaldsskólakennarar eru langþreyttir á áhugaleysi hins opinbera á að rétta laun þeirra til jafns við aðrar stéttir. Enginn efast um mikilvægi starfa þeirra, sem þeir rækja af fagmennsku, þrátt fyrir miklar faglegar og félagslegar áskoranir sem sffellt færast í aukana.

Úr ályktun Kennarafélags Menntaskólans á Tröllaskaga

Við krefjumst þess að jöfnun launa verði höfð að leiðarljósi og að samið verði strax.

Úr ályktun Kennarafélags Menntaskólans í Reykjavík

Mikilvægt er að meta til fulls menntun, hæfni og reynslu framhaldsskólakennara til launa. Við tökum undir eindreginn stuðning annarra kennarafélaga við samninganefnd Félags framhaldsskólakennara og viðræðunefnd Kennarasambands Íslands.

Úr ályktun Kennarafélags Menntaskólans á Egilsstöðum

 

Ályktanir kennarafélaga

Hér er hægt að skoða allar ályktanir sem hafa borist.