Krafan er að stjórnvöld standi við gerða samninga

„Kennarar krefjast sambærilegra launa og aðrir háskólamenntaðir sérfræðingar á atvinnumarkaði.“ Þetta kemur fram í ályktun baráttufundar KÍ sem fram fór fyrir troðfullu Háskólabíói í dag.
Baráttufundur Kennarasambandsins krefst þess að stjórnvöld standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði.
Um þúsund félagsmenn samþykktu ályktunina á fundi síðdegis í dag.
Ályktunin i heild
Ályktun Kennarasambands Íslands á baráttufundi í Háskólabíói þann 6. nóvember 2024
Félagsfólk Kennarasambands Íslands í leik-, grunn- og tónlistarskólum hefur verið samningslaust í fimm mánuði og félagsfólk í framhaldsskólum í sjö mánuði. Verkföll hófust víða um land í lok október og ná þau til allra skólastiga og skólagerða með tilheyrandi áhrifum á þúsundir einstaklinga. Kennarasambandi Íslands blöskrar afstaða viðsemjenda sinna í kjaradeilunni og tekur eindregið undir áhyggjur foreldra og nemenda af stöðu mála.
Haustið 2016 var gert samkomulag milli opinberra launagreiðenda og bandalaga stéttarfélaga um breytingar á skipan lífeyrismála. Ári síðar höfðu lífeyrisréttindi launþega á almennum og opinberum vinnumarkaði verið jöfnuð. Samkomulagið kveður einnig á um jöfnun launa milli markaða. Sú jöfnun átti að taka sex til tíu ár. Samstarf um útfærslu jöfnunar launa hefur enn ekki borið árangur og því hafa aðildarfélög Kennarasambandsins sammælst um það markmið að kjarasamningar allra aðildarfélaga feli í sér skuldbindingu viðsemjenda um hvernig verður staðið við samkomulagið um jöfnun launa á næstu árum.
Átta ár eru langur tími. Kennarar krefjast sambærilegra launa og aðrir háskólamenntaðir sérfræðingar á atvinnumarkaði. Ómálefnalegur launamunur milli markaða hefur haft alvarlegar afleiðingar á íslenskt skólakerfi. Það sárvantar kennara. Löngu er orðið tímabært að bregðast við stöðunni með því að jafna launin og fjárfesta þannig í skólakerfinu og framtíðinni um leið.
Aðildarfélög Kennarasambandsins hafa aldrei staðið eins þétt saman. Samstaðan um verkefnið er alger og félagsfólk er tilbúið í langvinna baráttu fyrir kröfum sínum. Þær kröfur eru ekki aðeins réttlátar og eðlilegar heldur hvílir allur okkar lýðræðislegi grunnur á því að stjórnvöld standi við gerða samninga. Hvernig geta núverandi stjórnarleiðtogar, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, sem undirrituðu samkomulagið árið 2016, staðið frammi fyrir kjósendum og mært eigin trúverðugleika?
Baráttufundur Kennarasambands Íslands, haldinn þann 6. nóvember 2024 í Háskólabíói, krefst þess að íslensk stjórnvöld standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði.
Fjárfestum í kennurum. Fjárfestum í framtíðinni.