Kostnaður við rekstur íslenskra framhaldsskóla í alþjóðlegu samhengi

Fréttir|20. mars 2014

Í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis, Rekstrarstaða og reiknilíkan framhaldsskóla (febrúar 2014), kemur meðal annars fram að rekstrarstaða framhaldsskólanna hafi versnað mjög á síðustu árum og halli myndast hjá flestum þeirra. Ennfremur kemur fram í skýrslunni að þar sem fjárlög ársins 2014 miða við að heildarfjárveiting til málaflokks framhaldsskóla lækki um 3,1% frá árinu 2013 sé fyrirséð að vandi skólanna muni enn aukast á þessu ári ef ekkert verður að gert. Orðrétt segir í skýrslunni: „Mikilvægt er að [mennta- og menningarmála]ráðuneytið bregðist tafalaust við bágri rekstrarstöðu framhaldsskólanna og stuðli með skýrri stefnu og forgangsröðun að auknu samræmi milli fjárveitinga og þeirrar þjónustu sem skólarnir eiga að veita.“

Í ljósi þess sem að framan segir um afleita rekstrarstöðu skólanna kann það að hljóma einkennilega þegar á öðrum stað í skýrslunni er fullyrt að Íslendingar séu meðal þjóða sem verja mestu fé til framhaldsskóla. Orðrétt segir um þetta í skýrslunni: „Í alþjóðlegum samanburði eru Íslendingar meðal þeirra þjóða sem verja hvað mestu fé í framhaldsskóla þegar miðað er við hlutfall þjóðartekna.“

 

 Mynd 1:  

 


Í árlegum skýrslum frá OECD, Education at a Glance, er meðal annars fjallað um útgjöld til skólamála út frá mismunandi forsendum. Í nýjustu útgáfunni frá 2013 er til dæmis samanburður á heildarútgjöldum ársins 2010 til framhaldsskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (VLF) hvers lands. Mynd 1 sýnir þessi hlutföll. Meðaltal OECD landanna var 1,3% en hlutfall Íslands var 1,4% sem er 8% yfir meðaltalinu. Af þeim 32 OECD-löndum sem gefa upp þessi hlutföll eru 11 lönd með hærra hlutfall en Ísland, þar á meðal Noregur, Finnland og Danmörk, en 20 með lægra hlutfall. Ísland sker sig því ekki úr með áberandi hætti en þó má segja að þetta styðji að nokkru marki það sem segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar um að Íslendingar séu meðal þjóða sem verja mestu fé til framhaldsskóla þegar miðað er við hlutfall af vergri landsframleiðslu. Þetta má þó skoða í öðru ljósi.


Meðal þátta sem hafa áhrif á það að árleg heildarútgjöld Íslendinga til framhaldsskóla mælast nokkru hærri sem hlutfall af vergri landsframleiðslu en að meðaltali í OECD-löndunum eru að þjóðin er tiltölulega ung, hlutfallslega margir í hverjum árgangi hefja framhaldsskólanám og ætlaður námstími í íslenskum framhaldsskólum er lengri en að jafnaði í löndum OECD. Hér er ætlaður námstími í framhaldsskóla fjögur ár en meðaltal OECD-landanna er 3,3 ár eins og kemur fram í töflu 1. Hægt er að útiloka áhrif þessara þriggja þátta á kostnaðinn við rekstur framhaldsskólanna með því að skoða árleg útgjöld á hvern nemanda í framhaldsskólunum. Það er gert í skýrslum OECD.

Samanburður milli landa á útgjöldum af því tagi sem hér er til umfjöllunar er yfirleitt gerður með því að sýna kostnaðinn sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á hvern íbúa í viðkomandi landi eða með því að umbreyta upphæðum í svokölluð jafnvirðisgildi. Með fyrri aðferðinni er tekið tillit til þess að lönd eru misjafnlega auðug en horft til þess að þau ættu að öðru jöfnu að verja svipuðu hlutfalli af sínum auð í það málefni sem er til skoðunar. Seinni aðferðin er nokkurs konar kaupmáttarsamanburður þar sem tekið er tillit til þess hvað viðkomandi útgjöld eru mikils virði í viðkomandi landi.

Mynd 2 sýnir árleg útgjöld á hvern nemanda í framhaldsskólum OECD sem hlutfall af vergri landsframleiðslu á hvern íbúa í viðkomandi landi. Eins og sjá má þá er hlutfall Íslands 20% sem er langt undir meðalhlutfalli OECD-landanna, 27%. Aðeins þrjár OECD-þjóðir verja árlega lægra hlutfalli af meðal landsframleiðslu sinni til hvers framhaldsskólanemanda en Íslendingar. Því má segja Íslendingar séu meðal þeirra þjóða sem verja árlega minnstu af því sem er til skiptanna til þess að mennta hvern framhaldsskólanema.

Mynd 2

Nú er það svo að verg landsframleiðsla á hvern íbúa á Íslandi er hærri en í mörgum löndum OECD. Því má ætla að þó að árlegt framlag Íslendinga til hvers framhaldsskólanemenda sé lágt hlutfall af meðal landsframleiðslu þá geti virði framlagsins verið hátt borið saman við virði framlaga annarra þjóða. Mynd 3 sýnir árleg framlög OECD-landanna mæld á jafnvirðismælikvarða. Eins og kemur fram á myndinni eru árleg útgjöld Íslendinga á hvern nemanda í framhaldsskólum 25% undir meðal framlagi OECD-landanna. Aðeins átta OECD-þjóðir eru með minna árlegt framlag á hvern nemanda en Ísland.
Mynd 3


Framlag Íslands er lægra en allra hinna Norðurlandanna. Segja má að Íslendingar séu meðal þeirra þjóða sem verja árlega minnstu fé til þess að mennta hvern framhaldsskólanema. Í því ljósi er ekki undarlegt að rekstur íslenskra framhaldsskóla gangi erfiðlega.

Eins og að framan segir þá ræður það miklu um heildarútgjöld Íslendinga til framhaldsskóla að þjóðin er tiltölulega ung og hlutfallslega margir í hverjum árgangi hefja framhaldsskólanám. Flestir telja það líklega jákvætt og fáir treysta sér sjálfsagt til þess að mæla með því að aðgengi að framhaldsskólunum verði skert. Öðru máli gegnir um þriðja þáttinn sem nefndur var, það er að ætlaður námstími í íslenskum framhaldsskólum heldur lengri en að jafnaði í löndum OECD, fjögur ár hér en 3,3 ár að meðaltali í löndum OECD. 


Athyglisvert er að skoða hvaða áhrif það hefur á framlög þjóða til hvers nemanda ef tekið er tillit til ætlaðs námstíma. Áhrifin má sjá með því að bera saman myndir 3 og 4. Mynd 4 sýnir árleg útgjöld á hvern nemanda í framhaldsskólum uppsöfnuð yfir ætlaða skólagöngu. Þannig er til dæmis íslenska árlega framlagið á mynd 3 margfaldað með fjórum, það danska með þrem og OECD-meðaltalið með 3,3. Eins og sjá má þá fara uppsöfnuðu íslensku útgjöldin á hvern framhaldskólanemanda fram úr þeim finnsku en eru lægri en þau dönsku, norsku og sænsku og 10% lægri en að meðaltali í OECD-löndunum. Af þessu má ráða að Íslendingar séu meðal þeirra þjóða sem verja minnstu fé til þess að mennta hvern framhaldsskólanema, jafnvel þó tekið sé tillit til þess að ætlaður námstími í framhaldsskóla sé lengri hér en að jafnaði í löndum OECD.

Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ