Kosningu í tvö embætti FL lokið

Fréttir|10. september 2026
Kamran Abdullayev P8qggu2y3ps Unsplash

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu á vegum Félags leikskólakennara liggja fyrir.

Kosningu í tvö embætti á vegum Félags leikskólakennara er lokið. Um er að ræða sæti í stjórn Vísindasjóðs FL og FSL og sæti í vinnuumhverfisnefnd KÍ. 

Lilja Kristjánsdóttir hafði betur í kosningu um bæði embættin og tekur því sæti FL í stjórn Vísindasjóðs og vinnuumhverfisnefnd KÍ. 

Aðrir frambjóðendur voru Valerio Gargiulo og Guðný María Bragadóttir og er þeim þökkuð þátttakan.