Kosningaþátttaka 49,15% á hádegi í dag

Um 49 prósent félagsmanna höfðu greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag, mánudaginn 3. mars. Frestur til að kjósa er til hádegis á morgun.
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning KÍ/innanhússtillögu ríkissáttasemjara fer fram á vef KÍ. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan 12:00, föstudaginn 28. febrúar, og stendur til klukkan 12:00, þriðjudaginn 4. mars. Á hádegi í dag, mánudaginn 3. mars, höfðu 49,15% félagsmanna greitt atkvæði.
Innanhústillagan, sem undirrituð var, með fyrirvara um samþykki félagsfólks, 25. febrúar 2025, er ígildi kjarasamnings aðildarfélaga KÍ við ríki og sveit.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í aðildarfélögum KÍ (FF, FG, FL, FS, FSL, FT og SÍ) sem starfa hjá ríkisreknum framhaldsskólum og stofnunum og sveitarfélögum landsins. Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en getur ekki kosið skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar, Fjólu Ósk Gunnarsdóttur, sem athugar málið. Hægt er að senda henni póst á netfangið fjola@ki.is eða með því að hringja í síma 595 1111.
Hér er hægt að kynna sér nánar framkvæmd atkvæðagreiðslu.