Kosningaþátttaka 22,9 prósent á hádegi í dag

Fréttir|10. desember 2021

Varaformannskjör KÍ er í fullum gangi. Það er auðvelt að kjósa enda atvæðagreiðslan rafræn.

Alls höfðu 22,92% félagsmanna KÍ tekið þátt í varaformannskjöri KÍ á hádegi í dag. Atkvæðagreiðslan hefur staðið yfir frá því á mánudag og lýkur klukkan 14 næstkomandi mánudag. 

Félagsmenn sem eiga eftir að kjósa eru hvattir til að gera það. 

 

Átta eru í framboði til varaformanns

  • Guðný Maja Riba, grunnskólakennari í Breiðholtsskóla
  • Hjördís B. Gestsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Langholtsskóla
  • Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar
  • Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla
  • Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Sjálandsskóla
  • Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á vef KÍ.  Hlekkur inn á kosninguna er efst til hægri á forsíðu www.ki.is. 

  • Smelltu á hnappinn KJÓSA
  • Skráðu þig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem varaformann KÍ eða Skila auðu.
  • Smelltu á hnappinn KJÓSA og þá birtist gluggi þar sem þú ert beðin/n um að staðfesta atkvæði þitt.
  • Að lokum kemur staðfesting á því að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, getur þú kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Aftur í kjörseðil.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is  sími: 595 1111.