Kosningar til trúnaðarstarfa í FG eru hafnar

Fréttir|18. maí 2026
Fg Kosning

Kosið er til samninganefndar, skólamálanefnda og kjörnefndar í Félagi grunnskólakennara. Kosningu lýkur á hádegi á föstudag.

Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara gengur nú til atkvæða um hverjir taka sæti í skólamálanefnd, samninganefnd og kjörnefnd félagsins, fyrir tímabilið 2026 til 2030. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan tólf þriðjudaginn 19. maí
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan tólf föstudaginn 22. maí

Við hvetjum félagsfólk FG til að kynna sér frambjóðendum og taka þátt í kosningunum.

Kynningar frambjóðenda er að finna á kosningasíðu FG

Kynningar frambjóðenda í textaskjali

Nöfn þeirra sem bjóða sig fram

Um atkvæðagreiðsluna

Kjörnefnd FG hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti. Atkvæðagreiðslan hefst þriðjudaginn 19. maí kl. 12:00 og lýkur föstudaginn 22. maí kl. 12:00.

Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn Félags grunnskólakennara samkvæmt félagatali KÍ. 

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörnefnd áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.

  • Smelltu á Kosning í trúnaðarstörf FG 2026 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa, samkvæmt leiðbeiningum á atkvæðaseðli.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt er móttekið.

Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.