Kosningar í stjórn FSL að hefjast

Fréttir|4. febrúar 2026
Fsl Logo Rgb An Leturs (1)

Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla um stjórn Félags stjórnenda leikskóla hefst á mánudaginn.

Kosning í stjórn Félags stjórnenda leikskóla hefst mánudaginn nk. 9. febrúar klukkan 10.00 og henni lýkur miðvikudaginn 11. febrúar klukkan 12.00. Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.

Stjórn FSL skipa, auk formanns félagsins, fjórir aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar. Ný stjórn tekur við að loknum aðalfundi félagsins, sem fer fram 24. ágúst 2026.

Ellefu framboð bárust. Í framboði eru (í stafrófsröð):

  • Anna Björk Marteinsdóttir
  • Elín Friðriksdóttir
  • Halla Ösp Hallsdóttir
  • Halldóra Guðmundsdóttir
  • Jóna Rut Jónsdóttir
  • Jónína Einarsdóttir
  • Lísa Lotta Björnsdóttir
  • Margrét Gísladóttir
  • María Petrína Berg
  • Marthen Elvar Veigarsson Olsen
  • Nichole Leigh Mosty

Kynningar á frambjóðendum og nánari upplýsingar um starfsreynslu, menntun og áherslur þeirra er að finna á kosningavef FSL.

Nýtt kjörtímabil að ganga í garð

Nýtt kjörtímabil hefst hjá Félagi stjórnenda leikskóla í kjölfar aðalfundar sem fer fram 24. ágúst 2026. Kosningar og framboð vegna kjörtímabilsins 2026-2030 eru nú í fullum gangi.

Kosið er í framboðsnefnd, kjörstjórn og samninganefnd á aðalfundi og hægt er að bjóða sig fram í fyrrgreindar nefndir fram að kosningu með því að senda póst á netfangið fslframbod@ki.is. Sigurður Sigurjónsson var sjálfkjörinn í embætti formanns á kjörtímabilinu 2026-2030.