Kosning varaformanns KÍ er hafin

Fréttir|6. desember 2021

Félagsmenn KÍ kjósa sér varaformann þessa dagana. Atkvæðagreiðsla stendur dagana 6. til 13. desember.

Kjörstjórn KÍ hefur ákveðið að kosning um nýjan varaformann KÍ fari fram með rafrænum hætti. Framboðsfrestur vegna varaformannskjörs rann út 17. nóvember síðastliðinn. 

Hlekkur á kosninguna – Kjósa

Átta eru í framboði. Þau eru í stafrófsröð:

  • Guðný Maja Riba, grunnskólakennari í Breiðholtsskóla
  • Hjördís B. Gestsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Langholtsskóla
  • Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar
  • Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla
  • Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Sjálandsskóla
  • Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla.

Hvenær er kosið?

  • Hefst klukkan 12 mánudaginn 6. desember
  • Lýkur klukkan 14 mánudaginn 13. desember

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á vef KÍ.  Hlekkur inn á kosninguna er efst til hægri á forsíðu www.ki.is. 

  • Smelltu á hnappinn KJÓSA
  • Skráðu þig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem varaformann KÍ eða Skila auðu.
  • Smelltu á hnappinn KJÓSA og þá birtist gluggi þar sem þú ert beðin/n um að staðfesta atkvæði þitt.
  • Að lokum kemur staðfesting á því að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, getur þú kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Aftur í kjörseðil.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is  sími: 595 1111.