Kosning varaformanns KÍ
Fréttir|10. nóvember 2017

Undirbúningur fyrir kjör varaformanns Kennarasambands Íslands er hafinn.
Frestur til að skila inn framboði rennur út á miðnætti þriðjudaginn 21. nóvember næstkomandi.
Lög Kennarasambandsins kveða á um að varaformaður skuli kosinn á fjögurra ára fresti. Kjörstjórn KÍ hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan, sem er rafræn, fari fram dagana 7. til 13. desember 2017.
Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið frambodsnefnd@ki.is fyrir miðnætti daginn sem framboðsfrestur rennur út.
Í tilkynningu um framboð skal tiltaka nafn, kennitölu, aðildarfélag og vinnustað auk þess sem mynd af frambjóðanda þarf að fylgja.
Tilkynnt verður um öll framboð í miðlum KÍ um leið og þau berast.