Kosning um vinnumat grunnskólakennara hafin
Atkvæðagreiðsla um upptöku nýs vinnumats og breytingar á vinnutímakafla kjarasamnings Félags grunnskólakennara hófst klukkan níu í morgun. Atkvæðagreiðslan stendur til klukkan 13 föstudaginn 27. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar um nýtt vinnumat er að finna á vef Verkefnisstjórnar um nýtt vinnumat og auk þess fengu félagar í FG senda kynningu á vinnumatinu í gær.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi grunnskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn í launalausu leyfi, sem hafa beina félagsaðild að KÍ, þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um upptöku nýs vinnumats FG og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.
Félagsmönnum er bent á að hafa samband við trúnaðarmenn í sínum skóla ef spurningar vakna í sambandi við atkvæðagreiðsluna en einnig er hægt að leita til skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir. Hægt er að senda Fjólu tölvupóst á netfangið fjola@ki.is eða hringja í síma 595 1111.