Kosning um kjarasamning FT hafin

Fréttir|2. desember 2014

Kjörstjórn Kennarasambands Íslands hefur ákveðið, samkvæmt tillögu Félags tónlistarskólakennara, að atkvæðagreiðsla um nýjan samning félagsins hefjist miðvikudaginn 3. desember 2014, kl. 10:00. Kosningin verður rafræn en henni mun ljúka mánudaginn 8. desember 2014, kl. 12:00.

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi tónlistarskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins og skólum í einkaeigu/sjálfseignarstofnunum. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn í launalausu leyfi, félagsmenn í beinni félagsaðild að KÍ, þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FT og þá birtist atkvæðaseðillinn.

Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.

Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.