Kosning um formann FG stendur yfir

Fréttir|2. maí 2022

Atkvæðagreiðsla í formannskjöri Félags grunnskólakennara stendur yfir dagana 2. til 7. maí. Þrjú eru í framboði; Mjöll Matthíasdóttir, Pétur V. Georgsson og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir.

Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara velja sér nú formann til næstu fjögurra ára. Formannskjör hófst á slaginu klukkan tvö í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14 komandi laugardag, 7. maí. 

 

Þrjú eru í framboði til formanns

  • Mjöll Matthíasdóttir, kennari í Þingeyjarskóla
  • Pétur V. Georgsson, kennari í Brekkubæjarskóla
  • Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara
  • Skoða kynningar formannskandidata

 

Um atvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.

  • Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FG.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is,  sími: 595 1111.