Kosning hjá FF og FS fer vel af stað
Fréttir|22. apríl 2020

Kosningaþátttakan á öðrum degi kosninga gefur til kynna áhuga félagsfólks. Uppfærðar tölur 24. apríl.
Kosning meðal félagsfólks Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hófst þriðjudaginn 21. apríl og sólarhring síðar höfðu 36% kosið.
Uppfært: Kosningaþátttaka kl. 08:00 föstudaginn 24. apríl var 46,98%.
Félögin hafa staðið fyrir kynningu á samningnum, haldið átta kynningarfundi og hefur þátttaka félagsfólks verið mjög góð.
Kosning stendur yfir til kl. 12:00 föstudaginn 24. apríl. Félagsfólk er hvatt til að kynna sér samninginn og kjósa.