Kosið verður rafrænt um kjarasamning FL

Fréttir|20. júní 2014

Kjarasamningur Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem var undirritaður 16. júní síðastliðinn, verður borinn undir atkvæði félagsmanna dagana 27. júní til 3. júlí næstkomandi. Hægt er að kynna sér kjarasamninginn hér.

Kjörstjórn hefur ákveðið, samkvæmt tillögu Félags leikskólakennara, að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti og hefjist föstudaginn 27. júní kl. 9.00 og ljúki fimmtudaginn 3. júlí kl. 12.00. 

 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er.

Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL.

Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.

Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir og hægt er að senda henni póst eða hafa samband í síma 595 1111.