Kosið um nýjan samning hjá Fjölmennt og Verzlunarskólanum

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Fjölmennt.
Allsherjaratkvæðagreiðsla félagsmanna KÍ, í FF og FS, sem starfa hjá Fjölmennt annars vegar og í Verzlunarskóla Íslands hins vegar hefst á slaginu níu í fyrramálið. Skrifað var undir samkomulag um framlengingu kjarasamnings KÍ og Fjölmenntar síðastliðinn föstudag en undirritun samkomulags um framlengingu kjarasamnings KÍ og Verzlunarskólans fór fram í dag.
Tímasetning atkvæðagreiðslu
- Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 9:00 að morgni þriðjudagsins 26. maí 2020.
- Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12:00 fimmtudaginn 28. maí 2020.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum sem starfa hjá Fjölmennt og í Verzlunarskólanum.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
- Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin; Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS 2020 – Fjölmennt eða Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS 2020 – Verzlunarskóli Íslands.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vill fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.