Kosið um nýjan kjarasamning hjá Fjölmennt og í Verzlunarskólanum

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Fjölmennt.
Allsherjaratkvæðagreiðla félagsmanna Kennarasambands Íslands í FF og FS sem starfa hjá Fjölmennt annars vegar og Verzlunarskóla Íslands hins vegar hófst í dag, föstudaginn 18. maí. Atkvæði eru annars vegar greidd um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Kennarasambands Íslands vegna framhaldsskóla og Fjölmenntar sem var undirritaður 15. maí 2018 og hins vegar um kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna framhaldsskóla vegna Verzlunarskóla Íslands.
Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda framhaldsskóla sem starfa hjá Fjölmennt.
- Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 09:00 föstudaginn 18. maí 2018 (Fjölmennt) og klukkan 12:00 föstudaginn 18. maí 2018 (VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
- Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 12:00 miðvikudaginn 23. maí
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins, www.ki.is. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki
eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni.
- Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar.
- Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FF og FS 2018 – Fjölmennt EÐA Verzlunarskóli Íslands og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði. Ef þú vill fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.