Kosið um kjarasamning við Samtök sjálfstæðra skóla

Fréttir|18. september 2014

Allherjaratkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara og Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) hefst klukkan 12 á morgun, föstudaginn 19. september. Atkvæðagreiðslan, sem er rafræn, stendur til klukkan 12 fimmtudaginn 25. september næstkomandi.

Kjarasamingurinn sem greidd verða atkvæði um er samhljóða nýgerðum kjarasamningi FL við Samband íslenskra sveitarfélaga með þeim fyrirvara þó að starfsmenn sem hafa haft kjör umfram kjarasamning halda þeim.

Kjarasamningurinn nær til fjörutíu og eins og sjálfstætt starfandi leikskóla.

Um atkvæðagreiðsluna

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem ber heitið Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL (SSSK) og þá birtist atkvæðaseðill.
  • Veljið einn af svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtast skilaboð með orðunum Atkvæði þitt hefur verið móttekið. Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði er hægt að smella á Hætta við kosningu.
  • Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir í síma 595 1111, einnig er hægt að senda Fjólu póst á netfangið fjola@ki.is.