Kópavogsbær og Ölfus hlutu Orðsporið 2015
Orðsporið var veitt við hátíðlega athöfn í Björnslundi leikskólans Rauðhóls í Norðlingaholti í dag. Að þessu sinni kom Orðsporið í hlut Kópavogsbæjar annars vegar og Sveitarfélagsins Ölfuss hins vegar.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti viðurkenningarnar. Fyrir hönd Kópavogs tóku þau Sesselja Hauksdóttir leikskólafulltrúi og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri og G. Ásgerður Eiríksdóttir leikskólastjóri tóku við Orðsporinu af hálfu Sveitarfélagsins Ölfuss.
Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt er þeim sem þykir hafa skarað fram úr í að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskólastarfs og leikskólabarna. Ákveðið var á síðasta ári að Orðsporið 2015 færi til sveitarfélags eða rekstraraðila sem þætti hafa skarað fram úr í hækka menntunarstig starfsmanna og eða fjölga leikskólakennurum.
Kópavogsbær og Sveitarfélagið Ölfus hljóta orðsporið og segir í rökstuðningi valnefndar að bæði sveitarfélögin hafi sýnt sveigjanleika þannig að leikskólastarfsmenn hafa getað sinnt námi með vinnu; styrkir hafi verið veittir vegna námskostnaðar og launuð námsleyfi veitt. Í báðum sveitarfélögunum hefur þeim sem stundað hafa og lokið námi í leikskólakennarafræðum fjölgað í kjölfar metnaðarfullrar stefnu og framkvæmdar hennar. Nú eru 20 leikskólastarfsmenn í Kópavogi í námi í leikskólakennarafræðum og í Ölfusi hafa 13 lokið námi í leikskólakennarafræðum frá aldamótum.
Að Degi leikskólans stendur Samstarfshópur um Dag leikskólans en hann er skipaður fulltrúum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.
Myndir frá hátíðarhöldunum er að finna á Facebook-síðu KÍ.