Konur og kvár ætla ekki að bíða lengur

Fréttir|19. október 2023
Pistill

Boðað hefur verið til Kvennaverkfalls 24. október. Formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson, hvetur konur og kvár í hópi kennara og skólastjórnenda til að taka þátt í baráttudeginum. Kennarasambandið er einn aðstandenda Kvennaverkfallsins ásamt 35 öðrum samtökum, meðal annars öllum stærstu samtökum launafólks.

Kæru kennarar og skólastjórnendur!

Þriðjudaginn 24. október verður Kvennaverkfall og eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf þann dag. Að undanförnu hafa allmargir félagsmenn haft samband við skrifstofu KÍ og/eða fulltrúa aðildarfélaga okkar til að velta framkvæmd dagsins fyrir sér. Þar hefur helst verið nefnt hvort launagreiðendur hyggist hýrudraga starfsfólk sem ætli að taka þátt í Kvennaverkfalli.

Á síðustu dögum hefur komið í ljós að m.a. íslenska ríkið, Reykjavíkurborg, Ísafjörður, Suðurnesjabær  og Fjarðabyggð eru meðal þeirra atvinnurekenda sem hafa lýst yfir að þau muni ekki skerða laun starfsfólks sem tekur þátt í baráttudeginum.

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir sambandið hvetja öll sveitarfélög til að bregðast við á sama hátt og draga ekki af launum þennan dag. Þar er um öfluga stuðningsyfirlýsingu að ræða og afskaplega mikilvægt innlegg í átt að því að auka árangur aðgerðarinnar. Það er sérstaklega gleðilegt að við fréttum stöðugt af fleiri sveitarfélögum sem stökkva á þann vagn.

Kallað eftir samstöðu

Kennarasamband Íslands er einn aðstandenda Kvennaverkfallsins ásamt 35 öðrum samtökum, meðal annars öllum stærstu samtökum launafólks. Málstaðurinn er skýr og finna má allar upplýsingar um daginn og viðburði hans á vef Kvennaverkfallsins. Þar má finna ástæður þess að boðað er til heils dags verkfalls nú árið 2023, heilum 48 árum eftir þann sögulega dag árið 1975 þegar það fyrsta var boðað.

Þá, líkt og nú, var markmiðið að sýna fram á mikilvægi framlags kvenna og kvára til samfélagsins alls, meðal annars með því að gera áhrifin af því að konur og kvár leggi niður störf sýnileg. Meginkröfurnar eru að laun kvennastétta verði metin að verðleikum og kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi verði útrýmt. Konur og kvár ætla ekki að bíða lengur eftir aðgerðum og dagurinn á að enduróma þá ætlan og kröfu! 

Baráttudagurinn byggir á sterkum sögulegum grunni og því er ekki um eiginlegt verkfall að ræða, heldur borgaralega óhlýðni. Það er því hvers og eins félagsmanns KÍ að ákveða þátttöku. Samtöl fulltrúa KÍ við félagsfólk hafa meðal annars gengið út á það að útskýra muninn þar á. Það er að segja, að um einstaklingsákvörðun er að ræða, ekki ákvörðun KÍ sem stéttarfélags. Aðstandendur Kvennaverkfallsins, KÍ þar á meðal, kalla eftir samstöðu til að skapa þann kraft sem þarf til að knýja fram breytingar á samfélaginu og jafnrétti fyrir öll. 

Meginkröfurnar eru að laun kvennastétta verði metin að verðleikum og kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi verði útrýmt.

Talið er að 90% kvenna hafi lagt niður störf árið 1975 og markmiðið er að enn fleiri geri það í ár. Ákallið er að konur og kvár af öllum stigum samfélagsins leggi baráttunni lið næstkomandi þriðjudag, hvar á landi sem er.

Það er fræg sagan af Vigdísi Finnbogadóttur, sem var leikhússtjóri í Þjóðleikhúsinu árið 1975. Starfsfólk leikhússins fór til hennar og spurði hvort það ætti að leggja niður störf þann 24. október. Svarið hennar var að hún gæti ekki sagt þeim hvað þau ættu að gera, en hún myndi leggja niður störf. Í ár hafa til að mynda konur í borgarstjórn Reykjavíkur lýst því yfir að þær muni leggja niður störf.  

Lykilatriði að félagsmenn KÍ verði í fararbroddi

Við höfum heyrt frásagnir frá konum sem tóku þátt í einum merkasta degi í sögu okkar þjóðar, haustið 1975, þar sem meðal annars leikskólar og grunnskólar þessa lands lokuðu. Það hafði gríðarlega sýnileg áhrif, ekki síst vegna þess að feður þurftu að annast börnin allan daginn. Þar voru kennarar og skólastjórnendur í broddi fylkingar og ég vonast til að svo verði aftur næstkomandi þriðjudag. Að við sameinumst um að það þurfi að grípa til aðgerða sem sannarlega hrista upp í hlutunum. 

Í Kennarasambandi Íslands er að finna óþrjótandi mannauð kvenna og kvára sem hafa tekið stór skref í jafnréttisbaráttunni í gegnum árin. Það er því lykilatriði að á Kvennaverkfallsdaginn verði félagsmenn KÍ í fararbroddi viðburða, bæði í borg og sveit.  Því hvet ég konur og kvár í hópi kennara og skólastjórnenda að sýna stuðning við málstaðinn í verki þriðjudaginn 24. október næstkomandi. Baráttan er ennþá lifandi og saman munum við komast í endamarkið! 

Meðfylgjandi er bréf til stjórnenda fyrirtækja og stofnana frá framkvæmdastjórn Kvennaverkfalls 2023 og hvatningarbréf á íslensku, ensku, rúmensku og pólsku.