Könnun um áhrif COVID-19

Fréttir|20. október 2020

Hvernig upplifa kennarar og stjórnendur COVID-19 og áhrif þess á skólastarf? Netkönnun hefur verið sett í loftið til að kanna hug skólafólks til þessara mála. Félagsmenn KÍ eru hvattir til að taka þátt.

Frá því að COVID-19 faraldurinn fór að hafa áhrif á íslenskt samfélag og skólastarf hafa mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands staðið sameiginlega að því að tryggja eftir fremsta megni að unnt sé að halda úti skólastarfi. Í því verkefni hafa kennarar og stjórnendur lagt sig sérstaklega fram um að slíkt hafi verið mögulegt.

Á grunni sameiginlegrar viljayfirlýsingar um leiðarljós í skólastarfi á tímum COVID-19 sem undirrituð var í ágúst sl., hefur verið unnin könnun. Markmið hennar er að meta, meðal kennara og stjórnenda, áhrif COVID-19 á skólastarf, upplifun þeirra og viðhorf til viðbragða við COVID-19 faraldrinum sem varða starfsaðstæður og öryggi starfsfólks og nemenda í skólum. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar í áframhaldandi samstarf með það að leiðarljósi að tryggja menntun, öryggi og velferð nemenda og starfsfólks skóla.

Skólafólk er hvatt til að svara könnuninni en hún er opin til klukkan 16 næstkomandi föstudag, 23. október.

Félagsmenn KÍ fengu EPLI sent í morgun en þar er að finna hlekk í könnunina.