Könnun meðal skólafólks um áhrif COVID-19 á skólastarf

Menntamálaráðuneytið, í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga, ætlar að efna til könnunar meðal skólafólks þar sem spurt verður um starfsaðstæður á tímum COVID-19. Markmið er að finna leiðir til að tryggja betur öryggi og velferð kennara og nemenda.
Menntamálaráðherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, fundaði með forystufólki Kennarasambands Íslands og fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær þar sem meðal annars var rætt um hvernig betur væri hægt að tryggja öryggi og velferð kennara og nemenda á þessum flóknu tímum.
Ráðuneytið mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga gera könnun meðal skólafólks um viðbrögð við COVID-19 faraldrinum og áhrifum hans á skólastarf nú um stundir, svo sem starfsaðstæður og öryggi starfsfólks og nemenda í skólum. Á grundvelli könnunarinnar verður síðan skerpt á umgjörð skólastarfs sem og fræðslu og ráðleggingum til skóla og heimila. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðsins.
„Mikilvægi menntakerfisins sýnir sig enn á ný. Kennarar og heilbrigðisstarfsfólk þessa lands hafa unnið þrekvirki og áfram reiðum við okkur á þeirra störf. Hertar sóttvarnaraðgerðir ber nú upp á alþjóðlegum degi kennara í dag, en yfirskrift dagsins í ár vísar til þess hvernig kennarar sem leiðtogar í sínu samfélagi endurskapa framtíðina. Það er bæði spennandi og krefjandi hlutverk, ekki síst nú við núverandi aðstæður,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í sömu frétt.
Vísbendingar er um að börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu hafi farið verr út úr samkomubanni og skertu skólastarfi síðasta vor. Þetta sýna fyrstu niðurstöður rannsókna sem gerðar voru á vorönn 2020.
Menntamálaráðherra segir öryggi og velferð innan skólasamfélagsins vera samvinnuverkefni okkar allra enda séu skólarnir hjarta hvers samfélags. Við verðum hvert um sig að huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum, sýna hvert öðru tillitssemi og virðingu. Það reynir á samstöðu okkar og sveigjanleika í aðstæðum sem þessum, þetta er sannarlega langhlaup en ég er þess fullviss að við munum komast í mark. Við eigum allt að vinna að halda áfram uppi sem þróttmestu skólastarfi,“ segir ráðherra í fyrrnefndri umfjöllun.
Fyrirkomulag könnunarinnar verður kynnt nánar á næstu dögum.