Könnun á einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi

Vinnuumhverfisnefnd KÍ hefur sett af stað könnun á einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands.
Ný reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum var sett í nóvember 2015. Íslenskar sem erlendar rannsóknir gefa til kynna að allt að 3 til 10 prósent starfsfólks verði fyrir einelti á vinnustað, í kringum 4 prósent verði fyrir kynferðislegri áreitni en minni vitneskja er til um tíðni annars ofbeldis á vinnustöðum.
Markmið könnunarinnar er að kanna tíðni eineltis, áreitni og ofbeldis hjá kennurum, náms- og starfsráðgjöfum og skólastjórnendum hér á landi. „Á þingi KÍ kom fram að brýnt er að kanni tíðni og umfang ofangreindra vandamála hjá félagsmönnum til að geta betur aðstoðað þá við að leysa eins farsællega og kostur er úr þeim málum sem upp koma og veita þá þjónustu sem félagsmenn í reynd hafa þörf fyrir,“ segir í kynningarbréfi um könnunina sem félagsmenn í KÍ hafa fengið sent í tölvupósti.
Hafdís D. Guðmundsdóttir, sérfræðingur í jafnréttis- og vinnuumhverfismálum hjá KÍ, segir mikilvægt að sem flestir taki þátt í könnuninni. „Vitneskja um umfang slíkra mála meðal okkar félagsmanna liggur ekki fyrir og við teljum brýnt að fá skýra mynd af stöðunni. KÍ fær auðvitað inn til sín mál af þessu tagi en við vitum í raun ekki hversu stór hluti það er af þeim vandamálum sem koma upp úti í skólunum," segir Hafdís.
Hún segir umræðu um einelti, áreitni og ofbeldi sem kennarar verða fyrir vera viðkvæmt umræðuefni af ýmsum ástæðum. „Til þess að geta tekið á þessum málum þannig að það beri árangur fyrir alla aðila, er nauðsynlegt að vita meira. Þannig getum við unnið með markvissari hætti að því að taka á slíkum málum og vinna að forvörnum gegn þeim. Vinnuumhverfisnefnd hvetur því félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni því hvert svar skiptir máli," segir Hafdís.
Um könnunina
Hjördís Sigursteinsdóttir, aðjúnkt á viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri, er ábyrgðarmaður verkefnisins en könnunin er einnig liður í lokaverkefni tveggja Bsc-nemenda í sálfræði. Þeir munu eingöngu fá aðgang að kóðuðum göngum til úrvinnslu. Ef félagsmenn hafa spurningar þá er hægt að hafa samband við Hjördísi í síma 460 8618 eða senda tölvupóst á hjordis@unak.is.
Öll svör í könnuninni verða bæði nafnlaus og ónúmeruð og því órekjanleg. Farið verður með öll gögn sem trúnaðargögn og niðurstöður settar fram þannig að ekki verður hægt að rekja þær til þátttakenda.