Komumst ekki af án geðtengsla

Fréttir|19. janúar 2023

„Ungt barn myndar fyrst og fremst tengsl við sína nánustu; foreldra og fjölskyldu. En skólafólkið og skólinn, sér í lagi fyrsta skólastigið, er ekki langt undan. Fyrir utan foreldra er enginn eins mikilvægur í lífi ungra barna og fyrstu kennarar þeirra," skrifar Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, í pistli sem birtist í Skólavörðunni.

Geðtengsl snúast ekki eingöngu um kærleika og ást heldur líka um að komast af.“ Mikilvægi öruggra geðtengsla kemst vel til skila í þessari tilvitnun Mary Main, frumkvöðuls í kenningum um geðtengsl.

Mannkynið lifir ekki af án geðtengsla, þau eru það mikilvæg.

Þetta staðfesta heilarannsóknir síðustu tveggja áratuga. Börn þrífast og læra best í umhverfi þar sem þau upplifa örugg geðtengsl við fólk sem er þeim mikilvægt. Myndun öruggra tengsla er veigamikill þáttur í þroska, námi og vexti barna.

Stöðugleiki og samræmi í viðbrögðum mikilvægur

Barn sem vel hefur verið hlúð að er með sterk geðtengsl. Örugg geðtengsl myndast þegar barn upplifir sterka og jákvæða tilfinningalega tengingu við umönnunaraðila, þegar umönnunaraðilar bregðast stöðugt og á áhrifaríkan hátt við merkjum frá barni og samræmi er í svöruninni.

Barn sem veit að það getur ávallt sóst eftir stuðningi bjáti eitthvað á; ef það er hrætt, slasað, þreytt, eða langar einfaldlega til að deila upplifun sinni með einhverjum, upplifir sig öruggt.

Örugg börn þora að kanna heiminn

Ávinningurinn af sterkum geðtengslum getur verið gífurlegur. Börn sem mynda sterkar tengingar við kennara sína og umönnunaraðila þora að kanna heiminn, rannsaka umhverfi sitt og taka áhættu í nýju umhverfi, enda eru þau hvött til þess og studd. Þannig börn eiga auðveldara með nám, svo sem bóknám, og eru sterkari námslega og félagslega alveg upp í framhaldsskóla.
Þau eru búin meiri þrautseigju og geta því betur mætt öllum þeim áskorunum er lífinu kunna að fylgja; streitu, álagi, áföllum og vonbrigðum, og læra fyrr en önnur börn að sefa sig sjálf, samkvæmt rannsóknum.

Örugg geðtengsl auðvelda börnum, sem skortir orð, getu og reynslu til að skilja tilfinningar sínar, að forðast að tilfinningarnar beri þau ofurliði. Með aðstoð umönnunaraðilans geta þau lært að ná tökum á tilfinningum sínum, öðlast skilning á þeim, og að lokum ræða reynslu sína og upplifun. Það er þannig líklegra að sjálfstjórn þeirra þroskist á eðlilegan hátt.

Fáir mikilvægari en kennarinn

Ungt barn myndar fyrst og fremst tengsl við sína nánustu; foreldra og fjölskyldu. En skólafólkið og skólinn, sér í lagi fyrsta skólastigið, er ekki langt undan.
Fyrir utan foreldra er enginn eins mikilvægur í lífi ungra barna og fyrstu kennarar þeirra.

Það er því fátt mikilvægara en að kennarar og uppalendur myndi við þau samband sem einkennist af trausti, skilyrðislausum stuðningi og umhyggju. Samband sem fær þau til að upplifa öryggi og sterk tengsl.

Grein Jónínu Hauksdóttur birtist fyrst í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022.