Kominn tími á að loforð verði efnd

Mikil samstaða var á fundi samninganefnda og stjórna aðildarfélaga Kennarasambandsins sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík í dag. Formaður KÍ segir tímabært að staðið verði við loforð um jöfnun launa milli markaða.
Stjórnir og samninganefndir aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, ásamt formanni og varaformanni KÍ, komu saman til fundar á Grand Hótel Reykjavík í morgun.
Umræðuefni fundarins var staða mála er kemur að helstu áherslum í komandi kjaraviðræðum aðildarfélaga KÍ og hvort hægt væri að horfa til sameiginlegra þátta í þeim viðræðum byggt á öflugu samstarfi þeirra innan Kennarasambands Íslands. Á fundinum var sérstök áhersla lögð á jöfnun launa milli markaða enda stjórn sambandsins nýlega búin að lýsa því yfir að það verkefni komist ekki lengra við miðlægt borð opinberra launagreiðenda og launafólks – og að það verði nú tekið upp í hefðbundnum kjaraviðræðum.
Magnús Þór Jónsson formaður og Oddur S. Jakobsson hagfræðingur Kennarasambandsins fóru yfir kynningu á viðfangsefnum liðinna vikna, bæði þeim er snúa að því að jafna launakjör milli opinbera og almenna markaðarins en einnig fara yfir þróun kaupmáttar og launa síðustu ára og þá möguleika sem uppi virðast vera í kjaraviðræðum þessar vikurnar.
Að kynningum loknum var unnið á borðum og í hópum, bæði meðal aðildarfélaganna sjálfra en einnig á milli aðildarfélaga til að kanna samhljóm og sameiginlega hagsmuni. Formaður KÍ var sáttur að loknum fundi:
„Það var alveg frábært að finna þann samhljóm sem kom hér fram í dag. Við skulum ekkert gleyma því að fundurinn var boðaður með stuttum fyrirvara og bara það að sjá hér í dag svona marga öfluga fulltrúa aðildarfélaga KÍ gladdi okkur og sýndi þá áherslu sem við hjá sambandinu leggjum á vinnu við kjarasamninga nú á þessum tímapunkti, segir Magnús og bætir við:
„Það er miklu meira sem sameinar okkur í kjaramálum, eins og í öðrum skólamálum, og þessi fundur sendi stjórn KÍ skýr skilaboð um að við viljum nýta þann kraft sem býr í heildinni. Eitt og sér er hvert aðildarfélag sterkt en saman erum við svo sannarlega sterkari!“
Spurður út í helstu áherslur á fundinum segir Magnús þær nokkuð ljósar.
„Við hjá Kennarasambandinu höfum bent á það að við teljum vinnu við jöfnun launa ekki ná lengra við miðlægt borð og verkefnið verði nú fært inn í hefðbundið kjarasamningsferli, sem kannski má segja að hafi verið þar fyrir samkomulagið 2016. Það er algerlega ljóst í okkar huga að leiðin að farsælum kjarasamningum aðildarfélaganna er háð því verkefni. Það er auðvitað til skammar að við séum enn ekki jafnlaunasett við háskólamenntaða sérfræðinga á almennum markaði. Nú er kominn tími á að þau loforð verði efnd,“ sagði Magnús að lokum.
Vinna dagsins hjá stjórnum og samninganefndum Kennarasambandsins verður grunnur að stefnumótunarvinnu, vinnu sem hefst nú af krafti í vikulokin þegar stjórn KÍ kemur saman á vinnufundi til að móta næstu skref.

Það er algerlega ljóst í okkar huga að leiðin að farsælum kjarasamningum aðildarfélaganna er háð jöfnun launa. Það er auðvitað til skammar að við séum enn ekki jafnlaunasett við háskólamenntaða sérfræðinga á almennum markaði. Nú er kominn tími á að þau loforð verði efnd.