Komdu með!

Mjöll Matthíasdóttir, verðandi formaður FG, hvetur félagsmenn til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
Kæru grunnskólakennarar,
Niðurstaða í formannskjöri er ljós. Ég þakka hlýjar kveðjur í minn garð og það traust sem mér er sýnt með kjörinu. Í lok maí er kosið til annarra trúnaðarstarfa fyrir FG.
Verkefni nýrrar forystu eru fjölbreytt. Kjarasamningar eru lausir eftir 10 mánuði. Ég tel nauðsynlegt að viðhorf félagsmanna til fjölmargra þátta í kjara- og starfsumhverfi verði kannað. Næsta samninganefnd þarf góða yfirsýn yfir stöðuna til að móta samningsmarkmið.
Gott samstarf aðildarfélaga KÍ er mikilvægt. Fjölmörg sameiginleg kjara- og réttindamál eru í vinnslu og til að ná árangri þurfum við að ganga í takt.
Kennarar eiga að taka forystu í skólamálaumræðu, hvort sem er á vettvangi sveitarstjórna, löggjafans eða almennt í samfélaginu. Skólamálanefnd leiðir þá umræðu og því ætti nefndin að endurspegla fjölbreytt skólastarf.
Kennarar eru að vinna gott starf um land allt en okkur vantar fleiri í hópinn! Færa þarf lærdómssamfélag skólanna út fyrir veggi þeirra og inn á hinn félagslega vettvang. Þátttaka sýnir styrk.
Ég skora á ykkur sem viljið starfa með mér fyrir félagið, að stíga fram og gefa kost á ykkur í kjöri til trúnaðarstarfa. Framboðsfrestur er til 18. maí. Nú þarf að manna liðið – Komdu með!