Koma verður í veg fyrir heilsutjón

Formaður Félags leikskólakennara segir hraða stækkun leikskólastigsins hvorki auka gæði náms né bæta starfsaðstæður í skólunum. Aðalfundur Félags leikskólakennara sendi áskorun til rekstraraðila leikskólanna um að gera þegar í stað átak er kemur að viðhaldi leikskólanna þannig að hægt sé tryggja börnum og fullorðnum heilsusamlegt húsnæði.
Aðalfundur Félags leikskólakennara, sem haldinn var 30. september, skorar á rekstraraðila leikskóla að grípa þegar í stað til aðgerða við viðhald skólahúsnæðis svo koma megi í veg fyrir enn frekara heilsutjón af starfsfólks og barna af völdum rakaskemmdu og myglu.
Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir ekki sé lengur hægt einskorða málið við gamalt húsnæði. „Nýleg dæmi sanna að einbeittur vilji allra sveitarfélaga að stækka kerfið enn frekar og það á ofurhraða er ekki að auka gæði leikskólanáms né bæta starfsaðstæður barna og kennara í leikskólum. Leikskólar eru fluttir á einni nóttu yfir í ókláraðar byggingar undir miklum þrýstingi frá bæði pólitík, foreldrum og þeim lykilstarfsmönnum sem fara með málaflokkinn í sveitarfélögunum. Hér þarf einfaldlega að setja niður fótinn og segja stopp!“ segir Haraldur.
„Það er skylda samkvæmt lögum að vinnuumhverfi sé ekki heilsuspillandi og rekstraraðilum ber að tryggja bæði börnum og fullorðnum heilsusamlegt húsnæði. Heilsutjón af völdum rakaskemmda er í sumum tilfellum óafturkræft og eru börn einn af þeim hópum sem er sérstaklega næmur fyrir rakaskemmdum,“ segir jafnframt í ályktun fundarins.

„Heilsutjón af völdum rakaskemmda er í sumum tilfellum óafturkræft og eru börn einn af þeim hópum sem er sérstaklega næmur fyrir rakaskemmdum“ segir í ályktun aðalfundar FL.
Ráðist verði tafarlaust í átak
Fréttir af óviðunandi húsnæði og vinnuaðstöðu í leikskólum nánast daglegt brauð. Í greinargerð með ályktuninni segir að of margt leikskólastarfsfólk sé í veikindaleyfi vegna þess að skólahúsnæði sé heilsuspillæandi og „og leiða má líkur að því að hópur starfsfólks mæti líka ennþá í heilsuspillandi húsnæði því þau eru ekki enn orðin mjög veik,“ segir orðrétt í greinargerðinni.
Aðalfundurinn segir að tímaspursmál sé hvenær fleiri leikskólar detta út. „. Á sama tíma mætir einnig hópur leikskólabarna enn í rakaskemmt og heilsuspillandi húsnæði, ýmist á meðan viðgerðum stendur, á meðan beðið er viðgerða eða eftir viðgerðir sem ekki hafa skilað nægjanlegum árangri. Mikilvægt er því ráðist verði tafarlaust í allsherjar átak til að tryggja öllum leikskólabörnum og starfsfólki heilnæmt skólahúsnæði,“ segir í niðurlagi greinargerðarinnar.