Kjörþögli

Fréttir|23. nóvember 2020

Kjörþögli e.selective mutism er hegðun sem lýsir sér í því að barnið talar ekki við ákveðnar aðstæður, oftast í skóla, enda þótt barnið noti tal í samræmi við aldur og þroska heima fyrir. Breski talmeinafræðingurinn Maggie Johnson hefur í áratugi helgað sig fræðslu og meðferð á kjörþögli barna og ungmenna í Bretlandi og víða um heim. Maggie hefur gert okkur kleift að hlusta á samtal sem hún átti við Kathy Brodie á Early Years Summit - Understanding and supporting selective mutism.

Kjörþögli e.selective mutism er hegðun sem lýsir sér í því að barnið talar ekki við ákveðnar aðstæður, oftast í skóla, enda þótt barnið noti tal í samræmi við aldur og þroska heima fyrir. Breski talmeinafræðingurinn Maggie Johnson hefur í áratugi helgað sig fræðslu og meðferð á kjörþögli barna og ungmenna í Bretlandi og víða um heim. Maggie hefur gert okkur kleift að hlusta á samtal sem hún átti við Kathy Brodie á Early Years Summit - Understanding and supporting selective mutism. Hægt er að nálgast myndbandið hér í möppu FÍS.

Hægt er að skiptast á hugmyndum og fræðslu um kjörþögli í hópnum Kjörþögli sem Halla Jónsdóttir sérkennari stofnaði á Fésbók.

Á Fésbók er einnig að finna erlenda hópa um Kjörþögli og mælum við sérstaklega með breska hópum SMIRA - Selective Mutism Information and Research Association.  

Breski hópurinn er einmitt hópur bresku kjörþögli-samtakana SMIRA sem eru með mjög góða heimasíðu þar sem fagfólk veitir ráð til annars fagfólks og foreldra.

Það góða við Covid-19 er að nánast öll fræðsla hefur færst yfir á netið og þannig getum við hér á landi grætt á ástandinu. Núna er hægt að skrá sig á námskeið m.a. um kjörþögli, en Maggie Johnson talmeinafræðingur og sérfræðingur í kjörþögli verður með námskeið á næstunni sem hægt er að skrá sig á hér.

Samtök sálfræðinga í Kanada eru með síðu þar sem m.a. er fjallað um kjörþögli.

Hér er hægt að horfa á mjög gott fræðslumyndband um kjörþögli. 

Hér er ágætis grein sem skrifuð er með aðstoð Maggie Johnson.

Á Amazon er að finna nokkrar ágætar bækur um kjörþögli, bæði fyrir börn og fullorðna.

Ef þú lesandi góður veist um fleiri tengingar á efni um kjörþögli værum við glöð að fá að birta það hér á heimasíðunni okkar.