Kjörsókn um kjarasamning FL 36%
Fréttir|9. maí 2022

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur yfir. Hægt er að kjósa til klukkan 12 á miðvikudag.
Félagar í Félagi leikskólakennara kjósa nú um nýjan kjarasamning. Samninganefndir FL og Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir samninginn 27. apríl síðastliðinn.
Gildistími samningsins er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
- Hófst klukkan 9:00 fimmtudaginn 5. maí
- Lýkur klukkan 12:00 miðvikudaginn 11. maí.
Um atkvæðagreiðsluna
- Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ.
Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna. - Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
- Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði. Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is.