Kjörsókn í stjórnarkjöri FSL var 51% klukkan tíu í morgun
Fréttir|12. mars 2018

Atkvæðagreiðslan hófst klukkan níu að morgni miðvikudagsins 7. mars. Hægt er að kjósa til klukkan 14:00 í dag, mánudag, 12. mars 2018.
Kjörsókn var 51% í stjórnarkjöri Félags stjórnenda leikskóla (FSL) klukkan 10 í morgun. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan níu að morgni miðvikudagsins 7. mars. Hægt er að kjósa til klukkan 14:00 í dag, mánudag, 12. mars 2018. Félagar í FSL eru hvattir til að nýta atkvæðisréttinn. Kosnir verða sjö fulltrúar, fjórir í aðalstjórn og þrír í varastjórn. Kjörtímabil hefst á aðalfundi FSL í maí og stendur í fjögur ár, til aðalfundar ársins 2022.
Frambjóðendur til stjórnar eru níu talsins;
- Guðný Anna Þóreyjardóttir
- Gyða Guðmundsdóttir
- Halldóra Guðmundsdóttir
- Hildur Arnar Kristjánsdóttir
- Hulda Jóhannsdóttir
- Jónína Hauksdóttir
- Lena Sólborg Valgarðsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Vigdís Guðmundsdóttir