Kjörsókn í formannskjöri var tíu prósent á hádegi

Félagsmenn Kennarasambandsins kjósa sér nú nýjan formann. Formannskjörið stendur yfir til mánudagsins næsta.
Alls höfðu 10 prósent félagsmanna greitt atkvæði í formannskosningu Kennarasambandsins á hádegi í dag. Þá var sólarhringur liðinn frá því opnað var fyrir kosninguna.
Enn er nægur tími til að taka þátt í kjörinu en kosningunni lýkur klukkan 14:00 næstkomandi mánudag, 8. nóvember.
Atkvæðagreiðslan er einföld og fer fram á Mínum síðum KÍ.
Fjögur í framboði
Frambjóðendur eru fjórir; Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla, Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði, og Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla.
- Kynningarsíða frambjóðenda
- Framboðsfundur KÍ sem fram fór í Grand Hótel Reykjavík í síðustu viku.
- Pistlar á vef KÍ (hér má finna greinar eftir frambjóðendur)
- Pallborð Vísis
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um Formann KÍ 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann KÍ.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.