Kjörsókn hjá SÍ og FSL í dag

Fréttir|1. september 2022

Kjörsókn hjá Skólastjórafélagi Íslands var 19,10% nú á hádegi og 15,79% hjá Félagi stjórnenda leikskóla. Atkvæðagreiðslu lýkur á mánudaginn, 5. september.

Kosið er um nýja kjarasamninga Skólastjórafélags Íslands annars vegar og Félags stjórnenda leikskóla hins vegar. Samninganefndir FSL og SÍ skrifuðu hvor um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. ágúst síðastliðinn.

Félagsmenn Skólastjórafélags Íslands sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga SÍ.

Félagsmenn Félags stjórnenda leikskóla sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga FSL.

  • Hér má nálgast frekari upplýsingar um kosningarnar og atkvæðisrétt. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.