Kjörsókn hjá FG var 42 prósent í morgun

Fréttir|7. maí 2022

Alls höfðu 42,1 prósent félagsmanna FG greitt atkvæði í formannskjöri félagins klukkan tíu í morgun.

Frestur til að greiða atkvæði í formannskosningum Félags grunnskólakennara rennur út klukkan 14:00 í dag, laugardaginn 7. maí. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ og viðmótið er þægilegt og einfalt. Fara á Mínar síður. 

Hlekkur á Mínar síður

 

Þrjú eru í framboði til formanns

  • Mjöll Matthíasdóttir, kennari í Þingeyjarskóla
  • Pétur V. Georgsson, kennari í Brekkubæjarskóla
  • Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara
  • Skoða kynningar formannskandidata

Mjöll, Pétur og Þorgerður

 

Um atvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.

  • Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FG.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is,  sími: 595 1111.