Kjörsókn hjá FG var 14% klukkan tíu í morgun
Fréttir|31. maí 2022

Aðeins 14 prósent félagsmanna Félags grunnskólakennara höfðu greitt atkvæði í kjöri til stjórnar, samninga-, skólamála- og kjörnefndar klukkan tíu í morgun.
Atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara lýkur klukkan tvö í dag. Kosið er til stjórnar FG, samninganefndar, kjörnefndar og skólamálanefndar fyrir kjörtímabilið 2022-2026.
Kjörsókn er dræm og var aðeins 14 prósent klukkan tíu í morgun. Kosningin fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
Úrslit verða kynnt síðdegis í dag.