Kjörsókn hjá FG og FL í dag

Fréttir|31. maí 2023

Kjörsókn hjá Félagi grunnskólakennara var 19,21 prósent á hádegi í dag og 23,82 prósent hjá Félagi leikskólakennara. Atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi á föstudaginn 2. júní.

Kosið er um nýja kjarasamninga Félags grunnskólakennara (FG) og Félags leikskólakennara (FL). Samninganefndir FG og FL skrifuðu hvor um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. maí síðastliðinn.

Félagsmenn FG sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga FG.

Félagsmenn FL sem starfa hjá sveitarfélögum landsins hafa atkvæðisrétt í kosningum um nýja kjarasamninga FL.

  • Hér má nálgast frekari upplýsingar um kosningarnar og atkvæðisrétt. 
  • Hér er hægt að kynna sér samningana. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.